ingig.net

Ideas, problems and development of Fronturs websites

Vefþjónustur

clock May 31, 2004 21:37 by author ingig
Ég hef verið að dunda við að gera nokkrar vefþjónustur í gegnum tíðina. Þetta eru allt vefþjónustur sem mér hefur fundist að eigi að vera til í samfélaginu og að fyrirtækin sem eiga þjónustuna ættu að bjóða uppá. Ég hef birt þær á barnalandi á þessari slóð http://www.barnaland.is/?sid=948. Ég mun líklegast flytja þær á þennan vef því þessi tilrauna starfsemi á frekar heima hérna en þar, auk þess vil ég gera þetta í mínu nafni en ekki barnalands.

Nýjasta vefþjónustan er sjónvarpsdagskráin en það er hægt að fá upplýsingar um allar dagskrárnar(nema Omega) í gegnum vefþjónustuna. Upplýsingarnar fæ ég frá heimasíðumsjónvarpstöðvana. Hinsvegar er Skjár 1 með þetta á Word formati sem hefur verið að stríða mér soldið mikið, og þyrfti ég að senda athugasemd á þá um að hafa þetta bara á txt formati

Það sem ég var hinsvegar að pæla er að með svona tæki þá er auðvelt að búa til síðu eins og sjonvarp.is því maður þarf ekki að gera neitt nema þá í undartekningar tilvikum ef vefþjónusturnar skildu klikka, þá yrði hún gerð "gáfarði" og þá minnka líkurnar á því að það klikki aftur.

Ég hef líka verið að pæla hvort ekki væri málið líka að setja þetta inní HTPC, þar sem maður gæti flétt upp sjónvarpsdagskránni á sinn hátt án þess að fara alltaf í textavarpið. Það gæti t.d. komið upp 5min fyrir næsta dagskrálið hvað væri næst á dagskrá með litlum stöfum neðst á skjánum. Það hafa einmitt tveir spurt mig að því hvar þeir get fengið vefþjónustuna að sjónvarpsdagskránni, nú er bara bara spurning hvort þeir implimenti eitthvað svona. Vonandi, þá þarf ég ekki að gera það :)

Be the first to rate this post

  • Currently 0/5 Stars.
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5


Gott frí - með smá böggum :)

clock May 30, 2004 21:35 by author ingig
Bregða smá útaf og tala um sjálfan mig.

Var að koma úr alveg hreint mögnuðu 10 daga fríi. Stefnan var tekin á lítið sveitahverfi kallast Cantagrils um 40 kílómetrum norðan við Montpellier í Frakklandi, þar var líka þessi fína "Villa" sem var hangið á. Grillað alla daga, legið og sofið allan daginn og þegar það var orðið of heitt þá var skellt sér í laugina eða ískaldur bjór/rósavín drukkið. Semsagt magnað sumarfrí án tölvu.

Það kom upp smá böggur á barnalandinu, 27 og 28 maí. Þá tók IIS-inn upp á því einsdæmi að spyrja notendur um notendanafn og lykilorð. Temporary redding var að endurræsa vélina þar til ég kom heim og gat skoðað þetta að einhverju ráði. Eftir smá leit þá komst ég niður á þetta: PRB: Anonymous Access Fails With an HTTP 401.1 Error After You Join an IIS 5.0 Windows 2000 Domain. Ekki skil ég afturhverju þetta gerðist alltí einu og þar að auki á versta tíma þegar maður er staddur lengst útí sveit án nettengingar. Þetta fix virðist þó hafa virkað.

Það (ó)skemmtilega er hinsvegar að alltaf þegar ég hef farið eitthvað frá heimilinu, þ.e. í frí eða vinna erlendis þá hefur alltaf komið upp eitthvað vesen með vefinn, virðist vera einhver álög á mér sem er auðvitað verra. Sjáum hvort eitthvað gerist vikuna 14-20 júní en þá er síðasta fríið í sumar sem verður sumarbústaður í Húsafelli. Spurning að spjalla við góð vini mína hjá Þekkingu (eMax) og fá nettengingu þangað, það væri auðvitað eitur svalt.

Be the first to rate this post

  • Currently 0/5 Stars.
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5


Lucene.Net leitarvélin

clock May 10, 2004 21:23 by author ingig
Leitarvélin á barnaland.is hefur verið frekar slöpp uppá síðkastið, fyrst var ég að nota einfalt LIKE á umræðuna en að sjálfsögðu þegar það voru komnar nokkur þúsund umræður þá hætti það að duga. Næst á dagskrá var að nota Full-text möguleika í SQL Server en það er ekki alveg að gera sig.

Lucene.Net leitarvélin kemur frá jakarta verkefni og er upphaflega java verkefni(eins og svo margt annað gott). Það er frekar einfalt að útfæra leitarvélina. Indexa texta er einhvernvegin svona.
Analyzer a = new StandardAnalyzer(stopWords);
string[] stopWords = new string[] { "og", "að", "eða", "það", "var", "í", "við", "á", "þar", "er", "um", "til", "þetta" }; IndexWriter iw = new IndexWriter(pathToIndex, a, true); Document doc = new Document(); doc.Add(Field.UnIndexed("id", 1)); doc.Add(Field.UnIndexed("headline", "Fyrirsögn")); doc.Add(Field.UnStored("content", "fyrirsögn" + "texti")); iw.AddDocument(doc); iw.Optimize(); iw.Close();


Hugmyndin er svo að láta indexinn keyra sem windows service. Hann mundi svo keyra á 2ja tíma fresti til þess að indexa nýjar umræður sem hafa komið inn eftir að síðast var indexað.

Leitarvélin svo sjálf er nokkuð öflug, hún bíður uppá ýmsa valmöguleika til að leita, hvort sem er með AND, OR, NOT, dagsetningum, grúppu leit og einhver annar slatti.

Að leita virkar einhvernvegin svona.
IndexSearcher indexSearcher = new IndexSearcher(pathToIndex); Query query = QueryParser.Parse(searchString,"content",new StandardAnalyzer()); Document doc; Hits hits = indexSearcher.Search(query); for (int i = 0; i < hits.Length(); i++) { doc = hits.Doc(i); Console.WriteLine(doc.Get("headline")); Console.WriteLine(doc.Get("id")); }


Að sjálfsögðu tekur leitin rétt um 0 sekúndur að keyra líkt allar eðlilegar leitarvélar. Það verður gaman að fá loksins almennilega leitarvél á barnalandið

Be the first to rate this post

  • Currently 0/5 Stars.
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5


htmlArea

clock May 1, 2004 21:21 by author ingig
htmlArea 3 er orðin nokkuð öflugur wysiwyg editor. Ég held að ég sé búin að bíða í c.a. 1. ár eftir nothæfri útgáfu af v.3 en hann styður Mozilla, ég náði í nýjast update-ið af sourceforge og þetta er bara orðið helvíti magnað.

Það sem er sennilega sniðugast er Word cleanerinn, en þá sér htmlArea um að hreinsa öll ljótu html tögin sem Word setur þegar það er gert copy/paste og lagar þannig að út komi xhtml. Sérstaklega þegar maður er að reyna að halda barnaland.is eins nálægt xhtml og maður getur og þá var þessi venjulegi contenteditable ekki alveg að gera það.

Nú er bara spurning um að henda þessu í einhvern pakka þannig að það sé auðvelt að nota þetta á barnalandinu

Be the first to rate this post

  • Currently 0/5 Stars.
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5


Search

Twitter Updates

    Myndir

    Er.is

    Calendar

    <<  November 2008  >>
    SuMoTuWeThFrSa
    2627282930311
    2345678
    9101112131415
    16171819202122
    23242526272829
    30123456

    Archive

    Tags

    Categories


    Blogroll

    Disclaimer

    The opinions expressed herein are my own personal opinions and do not represent my employer's view in anyway.

    © Copyright 2008

    Sign in