ingig.net

Ideas, problems and development of Fronturs websites

Fyrsti dagur eftir breytingu

clock May 31, 2005 23:05 by author ingig
Fyrsti dagurinn hefur gengið nokkuð vel, engin alvarleg mál hafa komið. Einu vandamálin hafa verið eru pixel mál, þ.e. að það þurfi að flytja einn hlutann niður/upp/vinstri/hægri á síðunni. Sindri benti mér líka á að glugginn breytti stærð sinni þegar farið var á milli síðna. Einni var smá vandamál með skilaboðin en það hefur verið leyst.

Þannig má segja að þetta hafi verið nokkuð stórslysalaus dagur.

Be the first to rate this post

  • Currently 0/5 Stars.
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5


barnaland.is og mbl.is í samstarf

clock May 30, 2005 23:04 by author ingig
Jæja þá var höfum við sett nýtt útlit á barnaland.is í loftið. Eins og sést þá er útlitið byggt á mbl.is en ástæðan er sú að við höfum hafið samstarf.

Enn og aftur verð ég að lýsa hrifningu minni á css, allar útlitsbreytingar voru gerðar í css skjalinu hjá okkur og þurftum við ekki að breyta einum einasta kóða í kerfinu hjá okkur. CSS er *SNILLD*

Þá þurfti að bæta við smá javascript trigger, sem setti undirsíðurnar í layer. Ástæðan fyrir því var að ekki var nóg pláss fyrir allar undirsíðurnar í litla barnum fyrir neðan yfirsíðurnar. Þannig að ef farið er yfir "Fleiri greinar »" á einhverri undirsíðunni þá birtist glugginn. Hægt er að skoða javascript kóðan á þessari slóð http://barnaland.is/lang/barnaland/frontpage.js.aspx en fallið heitir ul2finder()

Ég byrjaði að búa til útlitið á miðvikudag og var það 98% tilbúið á fimmtudag, tók c.a. 6 tíma að gera þetta(var ég búið að segja að CSS er snilld :) þannig að maður er sjálfur að venjast útlitinu.


Við settum líka inn nýjan wysiwyg ritil í vefdagbókina en hann þrælvirkar alveg.
Þá er líka komin inn Netráðgjöf hjá okkur fyrir þá sem vantar ráðgjöf í lífinu. Held að það ætti að vera nóg að gera í þessu og löngu tímabært enda held ég að það sé engin annar með svona sálfræðiráðgjöf á netinu.

Næst á dagskrá er að fínpússa css-ið og laga þá bögga sem við vitum af og þá sem koma upp, eftir það er Spánn :)

Be the first to rate this post

  • Currently 0/5 Stars.
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5


TinyMCE snilldar WYSIWYG editor

clock May 24, 2005 23:02 by author ingig
Ég verð að benda á þennan editor frá Moxiecode System AB, miklir snillingar frá Svíþjóð og hann kostar ekkert :)

Be the first to rate this post

  • Currently 0/5 Stars.
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5


Uppfærslur á barnaland.is

clock May 24, 2005 23:01 by author ingig
Ég hef ekki sett hérna inn lengi, en þar sem maður er að læra undir próf þá gerir maður allt annað en einmitt að læra :)

Ein af ástæðunum fyrir því að það hefur verið lítið uppfært upp á síðkastið er að það hefur verið bara ansi mikið að gera og stórar uppfærslur eru væntanlega á barnaland.is í næstu viku. Það eru nýir fítusar, ný þjónusta og nýtt útlit, vonandi verður það allt saman opnað á sunnudaginn.

Ég geri ráð fyrir því að notendur eigi eftir að kvarta fyrst yfir útlits breytingunum en það er alltaf þannig, erfitt fyrst. Ég vona samt að viðbæturnar sem koma verði þeim til mikillar ánægju og á það eftir að bæta þjónustuna hjá okkur töluvert.

Skemmtilegur sunnudagur framundan.

Be the first to rate this post

  • Currently 0/5 Stars.
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5


Form Builder

clock May 6, 2005 22:59 by author ingig
Þrælsniðugt tól, Form Builder býr til form fyrir mann en að búa til stórt form er eitt það leiðinlegast í html og það er xhtml :)

Be the first to rate this post

  • Currently 0/5 Stars.
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5


Search

Twitter Updates

    Myndir

    Er.is

    Calendar

    <<  November 2008  >>
    SuMoTuWeThFrSa
    2627282930311
    2345678
    9101112131415
    16171819202122
    23242526272829
    30123456

    Archive

    Tags

    Categories


    Blogroll

    Disclaimer

    The opinions expressed herein are my own personal opinions and do not represent my employer's view in anyway.

    © Copyright 2008

    Sign in