ingig.net

Ideas, problems and development of Fronturs websites

Nokkrar DOM æfingar

clock June 2, 2005 23:07 by author ingig
Það er svo langt síðan ég hef sett inn kóða hérna að ég var að skella þessu inn. Þetta er nú ekki merkilegt en sýnir hvað hægt er að gera með DOM á síðum.

Það sem ég er að gera í nýja auglýsingakerfinu er að leyfa fólki að senda inn margar myndir í einu, hinsvegar vil ég bara birta eitt file input box þegar síðan hleðst. Notandinn getur svo smellt á takka til að bæta við file input boxum. Að sjálfsögðu er algjörlega bannað að endurhlaða síðuna.

Þetta er html kóðinn. Einfaldur.
<html> <head> <title>hallo</title> </head> <body> <div id="fileInputs"> <input type="file" name="image_1" /> </div> <input type="button" onclick="addFileInput();" value="Bæta við takka" /> </body> </html>


Næst er að búa til javascript aðgerðina sem bætir við tökkum á síðuna. Html er hægt að skilgreina sem margir hlutir sem líta svona út <nafn hlutur="gildi"></nafn> öllum þessum hlutum er skellt inní svokallað DOM sem er hægt að segja að sé xml tré. Þannig að ef við lítum á þessa einföldu html síðu í DOM-inu lítur þetta svona út

html | |- head | | | |- title {hallo} | |- body | |- div[id="fileInputs"] | | | |- input[type=file, name=image_1] | |- input[type="button", onclick="addFileInput();", value="Bæta við takka"]


Það sem við þurfum að gera er að bæta við fleiri input[type=file, name=image] fyrir neðan div-ið. Þá lítur javascript kóðin svona út

var nextImageCount = 2; //byrjum í tveimur því eitt input var þegar á staðnum. function addFileInput() { var input = document.createElement('input'); input.type = 'file'; //nafnið og hækkum teljarann eftir að nafnið hefur verið sett input.name = 'image_' + nextImageCount++; //finnum nú div-ið sem inniheldur öll file input-inn var div = document.getElementById('fileInputs'); div.appendChild(input); //bætum nú nýja file input-inu við div-ið og þá er það búið. }


DOM er semsagt nokkuð sniðugt tæki og skemmtilegt að nota, sérstaklega þegar það er nýtt á réttan hátt

Be the first to rate this post

  • Currently 0/5 Stars.
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5


Að gefa skít í IE

clock June 2, 2005 23:06 by author ingig
Ég hef ákveðið að gefa skít í Internet Explorer. Ég er hættur að gera sérstaklega fyrir IE nema þegar kemur að laga eitthvað í útlitinu.

Hinsvegar flottir fídusar eins og position:fixed verður ekki einu sinni reynt að útfæra fyrir IE. Ég er t.d. að gera nýtt auglýsingakerfi hjá okkur núna, þar verða t.d. margir flokkar, fólk getur ekki uppfært auglýsinguna sína bara til að færa hana upp, margar myndir fyrir auglýsingu(án þess að svara sjálfum sér), hversu oft auglýsandi hefur sent inn, ajax notað til að sækja auglýsingar eftir flokkum og svo auðveldlega hægt að senda inn spurningu um auglýsinguna.

Það sem ég ætla að nota er eitthvað sem ég rakst á um daginn, en tveirbloggarar hafa búið til comment kerfi hjá sér sem er alltaf með fixed position. Þetta er mjög sniðugur fítus því maður þarf ekki að skrolla niður alla síðuna til að svara. Þetta verður ekki fyrir IE notendur.

Þegar IE7 kemur út, þá virkar þetta sjálfkrafa en það verður ekki fyrr en í haust. Þannig að ég mæli með Firefox.

Be the first to rate this post

  • Currently 0/5 Stars.
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5


Search

Twitter Updates

    Myndir

    Er.is

    Calendar

    <<  November 2008  >>
    SuMoTuWeThFrSa
    2627282930311
    2345678
    9101112131415
    16171819202122
    23242526272829
    30123456

    Archive

    Tags

    Categories


    Blogroll

    Disclaimer

    The opinions expressed herein are my own personal opinions and do not represent my employer's view in anyway.

    © Copyright 2008

    Sign in