Nú hefur gamli umræðuflokkurinn Annað sem var á barnaland.is verið nánast alveg fluttur af barnaland.is. Áður var hægt að fara inná http://barnaland.is/messageboard/messageboard.aspx?advtype=52 til að komast inná umræðuþráðinn með barnalands útlitinu, núna er notandanum vísað yfir á er.is.
Einnig var það þannig að ef þú leitaðir í leitarvélinni á barnaland.is og fékkst upp umræðu frá er.is og smelltir á niðurstöðuna þá fékkstu upp barnalands útlitið. Það hefur líka verið breytt. Við erum að flytja þetta rólega alveg yfir á er.is og er planið á næstu mánuðum að fjarlægja umræðuna alveg af barnaland.is þar sem hún á ekki heima þar lengur.
Það eru líka komnir tveir nýjir umræðuflokkar, Heilsa og Ofnæmi.