"Greiða" takki fyrir heimabankann
Pælingin er þessi, að maður getur generate-að form, helst sama milli alla bankana, þannig að ég gæti búið til takka sem stendur á Greiða og valblað með banka, fólk smellir á hann og þá sent inná heimabankann sinn, einstaklingurinn loggar sig inn. Þegar hann hefur loggað sig inn þá er hann sendur á millifærslu formið. Þá eru allar upplýsingar útfylltar, s.s. banki, hb, reiknisnúmer, upphæð, tilvísun, netfang til að senda, lýsing, osfrv. Þetta er auðvitað bara nákvæmlega það sama ogPaypal button
Formið þarf ekki að vera flókið
<form action="SslUrlToBank" method="post">
<input type="hidden" name="bank" value="526" /> //banki
<input type="hidden" name="hb" value="26" /> //höfuðbók
<input type="hidden" name="account" value="123" /> // reiknisnúmer
<input type="hidden" name="kt" value="1111111119" /> //kennitala
<input type="hidden" name="amount" value="500" /> // upphæð 500 kr.
<input type="hidden" name="tilvísun" value="123" /> //tilvísunarnúmer
<input type="hidden" name="email" value="info@example.com" /> //netfang til að senda kvittun
<input type="submit" value="Greiða" />
<input type="hidden" name="type" value="millifaersla" /> //ef það væri hægt að senda millifærslu, ab-gíró, c-gíró, meira advanced dæmi, til að byrja með er millifærsla alveg nóg
</form>
Eina sem er í raun required eru fyrstu 5 fieldin. Allt annað er optional
Pælingin á bakvið þetta er að auðvelda fólki að greiða á netinu, þar sem ég rek bland.is (fyrrum barnaland.is) þá gef ég fólki möguleika á því að greiða með millifærslu í gegnum heimabankann, þetta kemur í veg fyrir villur og svo væri líka snilld að geta haft svona takka fyrir fólk sem er að kaupa í smáauglýsingunum hjá okkur. Gæti líka séð fyrir mér að með þessu væri hægt að búa til raunverulegt micropayment á klakanum, ekkert mál að millifæra 100 kr.
Þetta ætti líka að vera auðvelt í framkvæmd að gera server megin hjá bönkunum, lykillinn væri auðvitað að fá alla bankana til að implementa þetta.
Dýpri pælingar er svo að hafa redirect url, þannig að þegar viðkomandi hefur millifært þá er hann sendur aftur á síðuna sem hann kom frá og þjónustan eða varan sem hann var að kaupa er orðin virk.







btw ég hef áhuga á að auglýsa hjá þér í smá tíma. Ég reyndi að hringja og svo sendi ég líka póst í gegnum "hafa samband" endilega vertu i bandi.
Það er samt hægt að semja um verð á þessu og fá afslátt ef þú ert að stofna margar kröfur með lágri upphæð.
Ég talaði við einn hjá bankanum og hann sagði að það væri eitthvað í smíðunum varðandi svona mál.
Núverandi kerfi er ekki hannað fyrir svona starfsemi þannig að þeir ætla að gera eitthvað kerfi sem er ekki jafn stórt og þarf ekki marga til að viðhalda. Það mun því vera ódýrara og henta betur smáum færslum.
Mér hlakkar til að sjá hvað þeir koma með en það gæti verið smá bið í það.
Ég kannast einmitt við B2B hliðina hjá bönkunum, er að nota það sjálfur á uppspretta.is og það svínvirkar.
Það er Cons. sem skiptir megin máli þarna, að borga 120 kr. fyrir kröfu er alltof mikið. Það væri í lagi ef þetta væri eins og kortafyrirtækin sem tæku bara prósentu af upphæðinni.
Pælingin með þessu er að fólk geti beðið um 100kr. sem donation fyrir einhverja þjónustu sem það bíður uppá, tónlista fólk að selja tónlistina sína fyrir 1000 kr. o.s.frv.