QR kóði fyrir heimabanka
Í gær varÍslensk samfélagsmiðlun, ýmislegt skemmtilegt rætt. Eins og alltaf eftir hittinginn þá er setist niður og spjallað, og þá verða oft til skemmtilega pælingar og maður lærir eitthvað.
Eftir einhvern tíma af spjalli við@valurthorþá byrjaði spjallið að koma heimabanka forriti í farsíma, þá kviknaði hugmynd um að það væri hægt að setja formið til að greiða í heimabanka(í færslunni fyrir neðan) inn sem QR kóði. Þannig geturðu hver sem er greitt fyrir eitthvað á götunni einfaldlega með því að smella mynd af QR kóða.
Tvær dæmisögur um hvernig hægt væri að nota þetta
- Hljómsveitir geta verið með qr kóða til að kaupa geisladiskinn með fyrirfram ákveðnu verði á tónleikum
- Hjálpastofnanir geta auglýst og verið með QR kóða í auglýsingunni með valdri upphæð
Einföld en sjálfsögð hugmynd





