Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Deila á Facebook
Deila á Twitter
Ingi Gauti Ragnarsson
Ingi Gauti Ragnarsson

Að nota lén með heimasíðukerfinu hjá bland.is

Nýja heimasíðukerfið inná bland.is er mjög öflugt og gefur fyrirtækjum og einstaklingum með sín lén að hýsa síðuna hjá okkur. Hérna koma leiðbeiningar um hvernig það er gert með lágmarks kostnaði. Í þessu dæmi mun ég vera með lénið dæmi.is, þannig að þú skiptir dæmi.is út fyrir þitt lén.

Ef þú átt ekki lén, þá þarftu að byrja á að kaupa þér lén. Íslensku lénin færðu hjáisnic.is, þú kaupir það þarna inni. Þú getur notaða hvaða lénaendingu sem þú vilt. Ef þú kaupir lén á isnic.is þá mæli ég með að fyrir Vistunaraðila, þá velurðu X.is ef þú vilt hýsa lénið þitt frítt (þetta er ekki heimasíðan þín)

Ef þú átt lén, og vilt hýsa lénið þitt að kostnaðarlausu, þá geturðu breytt því í X.is undir Vistunaraðilar inná isnic.is. Þá skráirðu þig inn á isnic.is, velur lénið þitt og velur "Flytja hýsingu". Þar inni velurðu svo X.is

Þegar þú er komin með lén, þá þarftu að setja upp DNS færslu fyrir lénið þitt.X.isbýður uppá að hýsa DNS færslurnar frítt, þúskráir þig hjá þeimef þú ert ekki með notandanafn. Þegar þú hefur skráð þig inn, þá smellirðu á "DNS Yfirlit"/"DNS Overview" í vinstri hliðinni á vefnum. Nú smellirðu á "Nýtt lén"/"New domain". Í dálkinum "Lénasafn"/"Domain name", slærðu inn lénið þitt, ef ég væri með lénið dæmi.is, þá mundi ég slá inn dæmi.is, í iptöluna slærðu inn212.30.226.27. Smelltu núna á "Vista"/"Save". Nú bætist lénið þitt í listann undir "Mín lén"/"My domains".

Nú þarftu að tengja lénið þitt við kerfið inná bland.is. Þú skráir þig inná bland.is með notendanafninu þínu og ferð í "Síðurnar mínar" og smellir á "Breyta heimasíðu". Þegar þú ert kominn inná heimasíðuna, þá smellirðu á "Stillingar heimasíðu". Undir "Lén" slærðu inn lénið þitt, í mínu tilfelli dæmi.is og vistar.

Nú hefur tengt DNS færsluna við kerfið hjá okkur. Eftir nokkra klukkutíma (allt að 24 klst) mun lénið verða virkt. Þetta fer svolítið eftir stillingum sem voru á DNS færslunni.

0 | 4.7.2011 16:25:03 #