Setja upp Google Apps fyrir lénið mitt
Google Appsbýður uppá fría póstþjónustu(og svo margt annað) fyrir lítil fyrirtæki og einstaklinga sem eru með sitt lén. Hérna eru leiðbeiningar hvernig á að setja það upp. Hérna miða ég að því að notaX.issem hýsingaraðila fyrir lénið þitt, það kostar ekkert þannig að það er tilvalið.
Byrjaðu áGoogle Apps, smellir á "Get started"takkann og slærði inn lénið þitt, ég ætla að nota daemi.is. Fyllir svo út allar upplýsingarnar þínar, og vistar. Næstu síðu velurðu notendanafn. Ég er alltaf með ingig, þannig að ég set ingig@daemi.is, vel lykilorð og klára restina. Þegar þú vistar, þá ertu komin inní Admin fyrir lénið þitt.
Núna skráirðu þig inn á X.is með notendanafninu þínu og lykilorði. Fyrst þarftu að fara í "Mínar Stillingar"/"My settings", þar hakarðu við "DNS viðmót fyrir lengra komna"/"Advanced DNS interface" og smellir á Vista/Save.
Smellir núna á "DNS Yfirlit"/"DNS Overview" í vinstri hliðinni á vefnum, og svo græna hnöttinn við lénið þitt til að breyta stillingunum.
Smellir núna á "Ný DNS færsla"/"New DNS Record"
- "Tegund"/"Type" velurðu "MX"
- "Nafn"/"Name" slærðu inn daemi.is. (skiptu út þínu léni ogpassaðuað hafa punktinn þarna í endann)
- "Efni"/"Content", slærðu inn ASPMX.L.GOOGLE.COM. (passaðuað hafa punktinn í endann)
- TTL = 86400
- "Forgangur"/"Priority" = 10
Nú endurtekurðu þessa aðgerð 6 sinnum, eina sem breytist er "Efni"/"Content" og "Forgangur"/"Priority"
Efni/Content
Forgangur/Priority
ALT1.ASPMX.L.GOOGLE.COM. 20 ALT2.ASPMX.L.GOOGLE.COM. 20 ASPMX2.GOOGLEMAIL.COM. 30 ASPMX3.GOOGLEMAIL.COM. 30 ASPMX4.GOOGLEMAIL.COM. 30 ASPMX5.GOOGLEMAIL.COM. 30
Þegar þú hefur vistað þessar upplýsingar, þá ferðu aftur inníGoogle App Admin hlutann(gætir þurft að skrá þig inn með notendanafni og lykilorði, ég var með ingig@daemi.is), smellir á "Dashboard" og þar undir Email smellirðu á "Activate Email", þar neðst niðri smellirðu á "I've completed these steps". Það getur svo tekið alltað 24 klst til að staðfestast.





