Nú er búið að tilnefna barnaland.is sem besta afþreyingarvefinn. Úrslit verða kynnt á morgun, sjáum hvað gerist.

Landsbankinn hefur verið tilnefndur í þremur flokkum og verð ég að segja að hann gæti þessvegna unnið í öllum flokkunum. Ég fílaði útlitið frá fyrstu sekúndu verð ég segja, ótrúlega snyrtilegt útlit, xhtml til staðar(nokkurn vegin 100% en 100% er ómögulegt þegar amatörar eru að setja efni á vefinn) og hraður. Ég er kannski hlutdrægur þar sem drop var að vinna í útlitinu og Jói er að vinna í heimabankanum.

Egill sem bjó til útlitið á barnalandinu hefur einnig verið tilnefndur sem besti einstaklingsvefurinn, hann var tilnefndur í fyrra líka. Ekki hægt að segja annað en maðurinn er snillingur í þessu.