Bregða smá útaf og tala um sjálfan mig.

Var að koma úr alveg hreint mögnuðu 10 daga fríi. Stefnan var tekin á lítið sveitahverfi kallast Cantagrils um 40 kílómetrum norðan við Montpellier í Frakklandi, þar var líka þessi fína "Villa" sem var hangið á. Grillað alla daga, legið og sofið allan daginn og þegar það var orðið of heitt þá var skellt sér í laugina eða ískaldur bjór/rósavín drukkið. Semsagt magnað sumarfrí án tölvu.

Það kom upp smá böggur á barnalandinu, 27 og 28 maí. Þá tók IIS-inn upp á því einsdæmi að spyrja notendur um notendanafn og lykilorð. Temporary redding var að endurræsa vélina þar til ég kom heim og gat skoðað þetta að einhverju ráði. Eftir smá leit þá komst ég niður á þetta: PRB: Anonymous Access Fails With an HTTP 401.1 Error After You Join an IIS 5.0 Windows 2000 Domain. Ekki skil ég afturhverju þetta gerðist alltí einu og þar að auki á versta tíma þegar maður er staddur lengst útí sveit án nettengingar. Þetta fix virðist þó hafa virkað.

Það (ó)skemmtilega er hinsvegar að alltaf þegar ég hef farið eitthvað frá heimilinu, þ.e. í frí eða vinna erlendis þá hefur alltaf komið upp eitthvað vesen með vefinn, virðist vera einhver álög á mér sem er auðvitað verra. Sjáum hvort eitthvað gerist vikuna 14-20 júní en þá er síðasta fríið í sumar sem verður sumarbústaður í Húsafelli. Spurning að spjalla við góð vini mína hjá Þekkingu (eMax) og fá nettengingu þangað, það væri auðvitað eitur svalt.