
November 1, 2004 21:49 by
ingig
Síðasta föstudag var barnaland.is valinn besti afþreyingarvefurinn. Gaman að því. Það fór eins og ég spáði að Landsbankinn vann í öllum sínum flokkum. Þeir hafa verið duglegir að auglýsa það.
Það var nokkuð gaman að kíkja á þessa samkomu, það var þó nokkuð af fólki sem maður þekkti og sumir sem ég hef ekki séð í nokkur ár. Það var líka gaman að heilsa uppá femin.is stelpurnar, sjá andlit á samkeppnisaðilann :)
Annars er maður bara að vinna í því á fullu að koma þýðingarkerfinu inní vefinn þannig að við getum farið að opna danska hlutann, hugsa að það verði komið fyrripart þessarar viku. Þá líður væntanlega c.a. 1 vika þar til við opnum í dk og þá er Asía næst(jább Asía). Þá erum við að leita eftir skrifstofu fyrir fyrirtækið, þannig að ef einhver veit um ódýrt skrifstofuhúsnæði þá endilega máttu láta mig vita. Við vorum að pæla í smá herbergi þar sem við erum bara tveir og þá vera með öðrum með kaffistofu og fundarherbergi.
Skemmtilegir tímar framundan.
Be the first to rate this post
- Currently 0/5 Stars.
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5