Ég hef verið að skoða WCF undanfarið þar sem það er víst það sem tók við af WSE. Þetta er nokkuð sniðugt og mjög sveigjanlegt en það tekur slatta tíma að komast inní þetta. Það eru mörg vandamál sem koma upp sem ég fer í seinna en núna er ég að vinna í því að endursmíða API kerfið hjá okkur. Það verður í SOAP, REST og JSON formi. 

Á næstu dögum ætlum við (hjá Fronti) að setju upp smá samkeppni þar sem viljum fá eins marga til að búa til forrit sem notar vefþjónusturnar okkar, hvort sem er með vefsíðu, síma eða gluggaforrit. Við munum bjóða uppá flotta vinninga fyrir bestu forritin og væntanlega auglýsa þetta í einhverjum skólanum, jafnvel í mínum gamla skóla HR.

Ég skelli svo inn slóðinni hérna inn þar sem verður hægt að fá upplýsingar hvernig hægt er að taka þátt og skrá sig.