Þegar verið er að búa til xhtml síðu þá er mælt með því að ContentType-ið á síðunum sé application/xhtml+xml, w3.org segir reyndar að það sé ekki skilyrði en það sé einn af valmöguleikunum. Félagarnir hjá Opera segja hinsvegar að það eigi að skila xhtml skjölum sem application/xhtml+xml.
Ég hef verið að velta þessu soldið fyrir mér og komist að þeirri niðurstöðu að þetta verður seint hægt á síðum þar sem notendur geta sjálfir skrifað inn html kóða. Þetta er lítið mál á stöðum eins og í
umræðu þar sem fólk má bara skrifa inn texta og allur html kóði er tekinn í burtu. Vandamálið byrjar þegar fólk má setja inn html kóða því ruglið sem kemur þar inn er alveg ótrúlegt. Ástæðan fyrir því að það verður seint hægt er að þegar contenttype-ið á síðunni er application/xhtml+xml þá krassar vefskoðarinn ef ein xml villa er gerð, það gerir html kóðunina erfiðari og notendur sætta sig ekki við slíka smámunasemi.
Síðasta mánuð hef ég gert tvær síður, annarsvegar fyrir
Nielsen Group ehf (vantar smá IE púsningu og IE7) og svo fyrir
Hälsosystem 24/12. Báðar þessar síður skila xhtml 1.1 doctype og er contenttype-ið á þeim application/xhtml+xml. Þú verður samt að skoða það í Firefox til að sjá það því IE styður ekki application/xhtml+xml. Þetta er mjög sniðugt, reglurnar strangar og staðlað.